Undanfarið hef ég verið að mála á 2 stærðir af "flísum" þessar mynni eru notaðir til að fegra horn og kanta og koma vel út eftir akrýl málunina. Stærri "flísarnar" eru 40 x 20 en þær minni eru
20 x 10. Ég nota ólíkar tegundir af þakflísum, allt frá sléttum beige lituðum í mjög svo grófar og hrjúfar sem ég nefni einfaldlega "rustico" Ég stefni að því að halda sýningu á Spáni og í Danmörku en staður og stund verður auglýst síðar. |
| |
|
|
Meðfylgjandi myndir eru teknar á samsýningu í Ráðhúsi Reykjavíkur, sýningin stóð frá 30.ágúst til 14 september 2008.
5 konur; Elín Guðbrandsdóttir, Guðný Svava Strandberg, Katrín Snæhólm, Katrín Níelsdóttir og undirrituð settum upp skemmtilega sýningu með þema Gegnsæji að leiðarljósi.
Sýningin var vel sótt og virkilega gaman að fá tækifæri, sýna sig og sjá aðra. Ógleymanleg skemmtun, takk fyrir mig! |